Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:35:54 (2388)


[11:35]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er að vísu rétt að hv. þm. Guðrún Helgadóttir var um eitt skeið forseti Alþingis. Ég hygg að sú staðreynd breyti engu um þingvenjur. Það sem hún sagði um það að mál sé dregið til baka til 3. umr. kallar ekki ósjálfrátt á að nefnd komi saman, þetta er misskilningur, enda gat hv. þm. ekki vitnað til þingskapagreinar í því sambandi. Það stendur í gömlu kvæði:
           Annars eins maður og Oliver Lodge
           fer ekki með neina lygi.
    Því miður kemur stundum fyrir að annar eins maður og Oliver Lodge fari ekki rétt með.