[11:36]
Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Í þingsköpum er gert ráð fyrir því að leyfilegt sé að taka mál aftur til nefndar milli umræðna en auðvitað leiðir það af sjálfu þegar sjálfur hæstv. ráðherra óskar eftir að samhljóða brtt. nefndar hljóti ekki afgreiðslu við 2. umr. heldur verði frestað til hinnar 3., þá hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því og sú ástæða hlýtur að kalla á umfjöllun nefndarinnar. Þetta segir sig sjálft þannig að ég held að
hæstv. ráðherra geti ekki mótmælt því að slíkt erindi verði til þess að kalla nefndina saman nema ráðherrann þurfi a.m.k. sólarhring til að lesa eftirfarandi orð, með leyfi hæstv. forseta:
,,Við 1. gr.
a. Orðið ,,nýrra`` í 2. málsl. 2. efnismgr. falli brott.
b. Orðin ,,frá og með 1. apríl ár hvert`` í 1. málsl. 3. efnismgr. falli brott.``
Ég held að þetta hljóti að vera fljótlesið og varla ástæða til að óska eftir að málinu verði frestað til 3. umr. aðeins til að brjótast í gegnum þessar tvær línur.