Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:41:42 (2393)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti mat það svo að þar sem hv. formaður landbn. hafði ekki tekið aftur þá beiðni sína að atkvæðagreiðsla um breytingartillögurnar fari ekki fram fyrr en við 3. umr., þá mun hún ekki fara fram nú.