[14:20]
Ólafur Ragnar Grímsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Orðið hagsmunaaðili í mínum munni er nú ekkert neikvætt, það er einfaldlega lýsing á staðreyndum, tiltölulega hlutlaust orð en lýsir hins vegar ákveðnum staðreyndum. Og það er út af fyrir sig gott að hv. þm. Ingi Björn Albertsson hefur með svo skýrum hætti eins og hér kom fram í hans ræðu viðurkennt það að hann sé hagsmunaaðili í málinu.
Erindi mitt hins vegar upp í þennan ræðustól var nú að fagna því að hæstv. fjmrh. sýnir vilja til þess að þingmenn fái tækifæri til þess að skoða þetta mál og reyndar þessi mál öll því að þetta er ekki bara eitt frv., hæstv. fjmrh. Ég er fyrir mitt leyti alveg reiðubúinn til þess að taka því tilboði að menn fái að tala hér í klukkutíma sem telja sig vera búnir að undirbúa sig undir það en umræðunni verði síðan að öðru leyti frestað í einhverja daga og menn hafi þá tækifæri til þess að skoða þetta mál betur og búa sig undir það þannig að mér finnst það vera viðleitni af hálfu hæstv. fjmrh. að setja fram hugmynd af þessu tagi.