Atvinnuréttindi útlendinga

53. fundur
Föstudaginn 09. desember 1994, kl. 13:55:01 (2484)

[13:55]
     Frsm. félmn. (Gísli S. Einarsson) :
    Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um atvinnuréttindi útlendinga. Undir nál. rita hv. þm. Gísli Einarsson, Eggert Haukdal, Guðjón Guðmundsson, Jón Helgason, Jón Kristjánsson, Sigbjörn Gunnarsson, Guðrún J. Halldórsdóttir. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, sem var fjarstaddur vegna samgönguerfiðleika, og Einar K. Guðfinnsson, sem var í önnum í fjárln., gátu ekki verið viðstaddir. Álitið er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um málið Gylfa Kristinsson frá félagsmálaráðuneytinu, Halldór Grönvold og Ara Skúlason frá Alþýðusambandi Íslands og Jón Steindór Valdimarsson og Ólaf Helga Árnason frá Samtökum iðnaðarins. Þá studdist nefndin við umsagnir sem félagsmálaráðuneytinu höfðu borist um frumvarpið frá ýmsum aðilum þegar það var á vinnslustigi.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingarnar eru eftirfarandi:
    1. Lagt er til að í stað orðsins manntalsskrifstofa í a-lið 13. gr. komi skráningaryfirvald. Breytingin byggist á því að hætt er að nota orðið manntalsskrifstofa og er það í samræmi við ákvæði annarra laga og samninga.
    2. Lögð er til sú breyting á 14. gr. að sérhæfðum starfsmönnum, ráðgjöfum og leiðbeinendum, sem vinna að samsetningu, uppsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja, verði heimilað að vinna á Íslandi í allt að fjórar vikur á ári án atvinnuleyfis. Frumvarpið hafði miðað við að þessum útlendingum væri heimilt að vinna hér allt að 10 daga á ári. Það er mat nefndarinnar að í mörgum tilvikum séu 10 dagar of stuttur tími fyrir þessa útlendinga til að ljúka sínum verkefnum.``