Fjáraukalög 1994

53. fundur
Föstudaginn 09. desember 1994, kl. 16:15:58 (2503)


[16:15]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það væri fróðlegt að heyra það hjá hv. 6. þm. Vestf., hvort Kvennalistinn muni greiða atkvæði gegn því komi fram frv. hér á þinginu um að reisa sinkverksmiðju. Það væri fróðlegt að fá það klárt fram. Þá liggur það fyrir og þingið getur unnið að málinu í ljósi þess.