[17:10]
Árni M. Mathiesen (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hv. þm. Guðni Ágústsson taldi sér henta í ræðu sinni hér áðan að gera tortryggilega 3 millj. kr. fjárveitingu til hjúkrunarheimilisins Garðvangs í Garði. Fjárveitingu sem er komin til vegna hækkunar á launakostnaði vegna starfsmats. Starfsmats sem byggt er á samningi milli starfsmanna og viðlíka stofnana frá 1988. Suðurnes voru seinust í þessu starfsmati og lauk ekki starfsmatinu fyrr en haustið 1993. Þannig að ekki er hægt að saka fjárln. um fljótræði í því að ákvarða þessa fjárveitingu.
Ég þekki vel vinnubrögð og hugarfar hv. þm. Guðna Ágústssonar þegar kemur að því að útdeila fé hjá hinu opinbera. Ég tel að hv. núverandi fjárlaganefndarmenn þurfi ekki að skammast sín í þeim samanburði, nema síður væri, og ég tel að þingmanninum fari afar illa að standa hér í ræðustól og vera með dylgjur til hv. fjárlaganefndarmanna, hvort sem þeir sitja í meiri hluta eða minni hluta, og honum væri nær að líta í eigin barm og sjá hvort ekki væri eitthvað þar sem laga mætti.