Reglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna

55. fundur
Mánudaginn 12. desember 1994, kl. 15:31:34 (2545)


[15:31]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Varðandi þá umræðu sem hér fer fram um lánasjóðinn er rétt að minna á að það stendur í athugasemdum í fjáraukalagafrv. að nefnd sé að störfum við að endurskoða útlánareglur lánasjóðsins og það sem hún eigi einkum að athuga sé hvort hægt sé að lækka ríkisframlagið til lánasjóðsins frá því sem nú er. Ég held að að væri betra verkefni, a.m.k. jafnframt, fyrir þessa nefnd að snúa sér að því að lagfæra ýmsa agnúa á reglunum, bæði á þeim sem hér hafa verið taldar og öðrum sem of langt yrði upp að telja í þessum fyrirspurnatíma.
    Þetta vildi ég láta koma fram við þessa umræðu.