[19:10]
Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er þannig að það er ákveðin upphæð sem hugsuð er greidd frá almannatryggingum til þeirra sem eru tekjulitlir og eins og þingmaðurinn lýsti hér og hafa fengið bætur til húsaleigu. Á sínum tíma þegar verið var að undirbúa lögin um húsaleigubætur þá var gert ráð fyrir að þessir aðilar fengju einnig húsaleigubætur eftir hinni nýju leið og þar með væri hægt að fella niður og fella inn í þann kostnað þær bætur almannatrygginga sem lytu einmitt að húsaleigustyrknum. Ég hef hins vegar fengið að heyra að það sé þannig með þessar greiðslur að þær hefðu komið til fólks sem er með svo litla afkomu að það nær ekki að fá þessar hámarkshúsaleigubætur sem láglaunafólki eru hugsaðar. Þetta þarf vissulega að skoða. En ég vil líka geta þess (Forseti hringir.) að það er um 70--80% af upphæðinni sem þarf vegna þess að það eru ekki öll sveitarfélög sem tóku þetta upp . . .
( Forseti (GunnS) : Forseti verður að biðja hæstv. ráðherra að ljúka máli sínu.)
. . . og afgangurinn að ganga til baka til viðkomandi þátta sem lögðu fjármagn inn í þetta.