Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

56. fundur
Þriðjudaginn 13. desember 1994, kl. 00:47:11 (2623)


[00:47]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég skildi þessa yfirlýsingu Kvennalistans sem kynnt var hér þannig að í meginatriðum mundi Kvennalistinn standa að því að ekknaskatturinn yrði felldur niður enda finnst mér að Kvennalistinn geti vart horft framan í sína umbjóðendur ef Kvennalistinn stendur ekki með þessari ákvörðun. Ég lít þannig á að Alþb. sé algjörlega einangrað í því að vilja vernda þennan ekknaskatt.