[17:50]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég hygg að það sé á vitorði flestra hér inni og víðar að það var Alþfl. sem stöðvaði það í tíð síðustu ríkisstjórnar að upp væri tekinn hátekjuskattur og fjármagnstekjuskattur og ég held að þeir þræti heldur ekkert mjög fyrir það þegar það er nefnt þannig að það er rétt að þeir svari fyrir það sem þáv. samstarfsflokkur Alþb. Hins vegar finnst mér að hv. þm. Sturla Böðvarsson eigi ekkert að vera viðkvæmur fyrir því að bent sé á það fyrir hvaða þjóðfélagshópa Sjálfstfl. stendur. Það er alveg ljóst. Og menn sjá það að hann stendur fyrir það að tilkynna um óbreytta skattbyrði almennra launþega en hann stendur líka fyrir það samtímis að tilkynna um 12% hækkun á skattfrelsismörkum hátekjuskatts. Hann stendur fyrir það að Sjálfstfl. tilkynnir um það að hátekjuskattsþrepið er framlengt um aðeins eitt ár. Það er ekki sett á sem varanlegt skattþrep. Hann stendur fyrir það að afnumið er sérstakt skattþrep í eignarskatti á eignir yfir 10 millj. kr. þegar viðkomandi hefur samtímis þar ár tekjur yfir 2 millj. kr. á ári. Þessu stendur Sjálfstfl. fyrir og auðvitað veit hv. þm. Sturla Böðvarsson hverjar áherslur flokksins eru í þessum efnum og á ekkert að vera að reyna að þvo það af sér. Staðreyndirnar tala skýru máli í þessu efni.