[00:18]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Svarið er já. Auðvitað er það þannig ef hlutirnir þyrftu að leggjast upp með þeim hætti þá tel ég að hér sé um að ræða í alvöru mjög brýnt forgangsverkefni þar sem línuhraðallinn er og ég væri tilbúinn til þess að taka á því máli eftir mætti með hv. þingmönnum.
Varðandi það að við höfum flutt breytingartillögur, þá er það rétt og það má leggja þær saman og fá út úr þeim einhverjar tölur. En ég bendi á að það birtust hér breytingartillögur á föstudaginn var frá ríkisstjórninni. Sagði hún ekki sjálf að þær kostuðu 2 milljarða?