Heilbrigðisþjónusta

58. fundur
Miðvikudaginn 14. desember 1994, kl. 14:06:16 (2730)

[14:06]
     Frsm. heilbr.- og trn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 86/1991, um breytingu á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, sbr. lög nr. 110/1992 og lög nr. 128/1993.
    Í greinargerð með frv. segir:
    ,,Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, var gert ráð fyrir að frá og með 1. janúar 1991 yrði heilsugæslustarfi í Reykjavík og starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur þannig háttað að lög nr. 44/1955, heilsuverndarlög, sbr. lög nr. 28/1957, yrðu óþörf og féllu því úr gildi. Hins vegar vannst ekki tími til að ganga frá nauðsynlegum breytingum á heilbrigðisþjónustulögunum varðandi starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir árslok 1991 og var því með lögum nr. 86/1991 veittur eins árs frestur til viðbótar því sem upphaflega var ákveðið í lögunum. Í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er nú unnið að endurskoðun frumvarpsins, en fyrir liggur að ekki verður unnt að afgreiða það fyrir áramót. Því er með þessu frumvarpi lagt til að bráðabirgðaákvæði laganna um heilbrigðisþjónustu verði breytt á þann veg að veittur verði eins árs frestur til viðbótar til að ganga frá lögum um framtíðarhlutverk Heilsuverndarstöðvarinnar.``
    Að lokinni 1. umr. um þetta frv. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr.