[12:52]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegur forseti. Ég hlýt að fagna því að frv. í þessa veru kemur hér fram þó ég hljóti um leið að vara við því að menn álíti að með einfaldri lagasetningu sé leiðin greið fyrir útflutning á lífrænum eða vistvænum búvörum. Við eigum vissulega ákveðna möguleika en það þarf bæði mikla og markvissa vinnu og til viðbótar verulegt fjármagn til þess að við komumst að því hvaða möguleika við eigum á þessu sviði.
Ég vildi kannski, virðulegur forseti, bera fram eina eða tvær spurningar til hæstv. ráðherra. Það er þá fyrst hvaða möguleika við höfum á að taka upp okkar eigin staðla og hvort við eigum möguleika á að fá þá skráða hjá alþjóðlegum stofnunum, þ.e. staðla yfir íslenska gæðabúvöruframleiðslu. Þetta er atriði sem ég held að sé mikilvægt að við áttum okkur á.
Í öðru lagi: Hvað vantar mikið upp á það að við getum uppfyllt þá alþjóðlegu staðla sem nú eru í gangi varðandi einstakar búgreinar þannig að við gætum farið að tala um hugsanlega mjólkurframleiðsluna í heild eða kindakjötsframleiðsluna í heild þannig að þær falli undir ákveðna gæðastaðla?
Ég hef alltaf í umræðu um þetta gert greinarmun á annars vegar því sem ég kalla nánast kreddubundna lífræna ræktun en það er alveg ljóst að ef menn ætla að fara með alla matvælaframleiðslu út í svo strangar kröfur þá mundi mannkynið hætta að brauðfæða sig. Um leið er afar mikilvægt að við náum að setja okkur staðla sem takmarki notkun tilbúins áburðar og með tímanum koma alveg í veg fyrir notkun hormóna og eiturefna. Það eru að vísu efni sem við höfum ekki notað hér og hlýtur að teljast til tekna fyrir okkur.
Þá vil ég segja sem mína skoðun varðandi möguleika í útflutningi að það er afar mikilvægt að þar taki allir aðilar höndum saman, að þeir sem hafa verið að vinna að útflutningi á landbúnaðarvörum nái samstarfi við þá öflugu aðila sem eru í matvælaútflutningi á vettvangi sjávarafurða. Þar tel ég að við eigum ákveðna möguleika m.a. í réttum sem eru blandaðir úr sjávarfangi og vörum frá landbúnaði.
Að lokum, virðulegi forseti, ítreka ég það sem ég sagði í upphafi að þetta kostar allt saman mikla vinnu ef við ætlum að ná árangri og þar af leiðandi fjármuni. Ég minni á það að ég var 1. flm. ásamt nokkrum þingmönnum Framsfl. í fyrra að þáltill. um útflutningssjóð búvara þar sem hugmyndafræðin var sú að ríkið og hagsmunaaðilar legðu saman krafta sína í þessum málum. Ég hef ekki endurflutt þá tillögu vegna þess að þetta mál hefur verið í gangi á vegum allra þingflokka sem hluti af þjóðhátíðargjöf okkar og ég hlýt að lýsa þeirri von minni að sú vinna skili þeim árangri að áður en við förum heim samþykki Alþingi vísi að útflutningssjóði búvara.