Lífræn landbúnaðarframleiðsla

60. fundur
Föstudaginn 16. desember 1994, kl. 12:58:40 (2815)


[12:58]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er alveg rétt og því gerði ég mér grein fyrir að viðurkenningin er einungis veitt einstökum bónda eða framleiðslustöð. En það kemur ekki í veg fyrir að við getum sett okkur markmið um það að framleiðslan öll sem slík falli undir slíka staðla þó að vissulega verði hin endanlega vottun að koma á hvern einstakan framleiðanda.