[10:48]
Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 90/1990, með síðari breytingum. Frv. er á þskj. 396.
Frv. þetta er lagt fram samhliða frv. til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Í því frv. er gert ráð fyrir að tekjuskattur verði ekki lagður á launatekjur barna og ungmenna undir 75 þús. kr. á ári.
Með frv. því sem hér er mælt fyrir er lagt til að sams konar undanþága verði á útsvarsgreiðslum barna og ungmenna vegna launa undir ofangreindum tekjumörkum. Að öðru leyti vísast til athugasemda með fyrrgreindu frv. um tekjuskatt og eignarskatt.
Í 1. gr. er tekið fram að börn og ungmenni, sbr. 2. og 3. mgr. 63. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, þurfi ekki að greiða útsvar af tekjum sem eru innan við það lágmark sem tilgreint er í 2. mgr. 67. gr. sömu laga. Gert er hins vegar ráð fyrir að áfram verði að greiða 2% útsvar af tekjum umfram tiltekið lágmark.
Að lokum er lagt til að hin breytta skattlagning barna og ungmenna komi til framkvæmda vegna tekna á árinu 1995.
Eins og fyrr segir var mælt fyrir frv. um breytingu á tekjuskattslögunum sl. föstudag. Það hefði verið eðlilegt að þetta frv. um breytingu á útsvari hefði fylgt því þá en það voru mistök að að kom ekki inn í þingið á föstudaginn. Það er mikilvægt að þetta frv. verði afgreitt samhliða þannig að það skapist ekki misræmi í skattlagningu.
Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og félmn.