[11:10]
Hjörleifur Guttormsson :
Virðulegur forseti. Mér þykir líklegt að sú athugasemd sem gerð var eigi stuðning hér í þingsal. Ég tel að hún sé réttmæt og ofur eðlileg og mér finnst alveg ástæðulaust að vera að draga það til næsta þings að breyta uppsetningu á þskj. Ég vil hvetja formann nefndarinnar til að stuðla að því að skjalið komi hér með öðrum hætti fyrir þingið til lokaafgreiðslu.