Bókhald

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 11:20:10 (2831)

[11:19]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á frv. til laga um bókhald á þskj. 404 og brtt. á þskj. 405. Hér er um að ræða mál sem eru nátengd frv. til laga um ársreikning sem var mælt fyrir nál. í hér næst á undan. Undir nál. skrifa fyrirvaralaust allir nefndaraðilar þannig að ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta frekari orð en vísa til þskj. 404 og 405.