Brunatryggingar

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 13:10:48 (2859)


[13:10]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Hér hefur verið fjallað um mörg og stór mál í morgun. Eins og ég sagði í ræðu minni áðan um nokkur þeirra þá hafa þau verið að koma á borð okkar þingmanna síðustu mínúturnar. Nú á samkvæmt því sem hæstv. forseti hefur tilkynnt að fara fram atkvæðagreiðsla um þessi mál. Ég tel þessi mál mörg hver vera það stór og mikil og hér hefur verið ágreiningur í gangi sérstaklega um síðasta málið sem rætt var. Ég fer því fram á það við virðulegan forseta að það verði gefið hálftíma hlé til að þingmenn hafi tækifæri til að skoða þetta betur áður en atkvæðagreiðsla fer fram.