Brunatryggingar

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 13:13:02 (2863)


[13:13]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Mér kemur það mjög á óvart ef virðulegur forseti neitar fundarhléi til að fara yfir atkvæðagreiðslur og að gefa þingmönnum tækifæri til að fara yfir málin eftir umræðuna áður en kemur til atkvæðagreiðslu við 2. umr. Það er altítt og það er allt of seint að fara að skoða þau mál á milli 2. og 3. umr. Ef það kemur ósk frá formanni þingflokks um slíkt þá finnst mér að það eigi að verða við því.