Hlutafélög

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 13:41:56 (2867)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þetta mál er búið að afgreiða frá efh.- og viðskn. og þar er algjör samstaða um málið og það hefur farið fram umræða hér í dag um málið. ( EKJ: Er búið að ræða málið?) Já, það hefur farið fram ítarleg umræða um málið hér í dag og komið að atkvæðagreiðslunni þannig að forseti getur því ekki orðið við þessari ósk hv. þm.