[15:12]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegur forseti. Ég held að það liggi orðið ljóst fyrir að einkum þrennt hefur gert það að verkum að nú eru mál komin í það horf sem nú er. Það er í fyrsta lagi sleifarlag við framlagningu stjfrv. sem tengjast fjárlagafrv. Það er í öðru lagi að stjórnarmeirihlutinn í mikilvægum nefndum þingsins, eða þeir sem standa þar að, virðast ekki geta komið sér saman um hvernig á að standa að afgreiðslu málanna. Í þriðja lagi virðist það gerast að eftir að búið er að gera samkomulag um hvernig framganga mála á að vera komist þau skilaboð ekki til formanna í nefndum þingsins. Þess vegna eru boðaðir nefndafundir hver ofan í annan og það sem sagt er einn daginn um vinnulagið þann næsta stendur ekki stundinni lengur. Því miður eru þetta þau vinnubrögð sem núna eru viðhöfð.
Ég vil í þessu sambandi vitna til þess að efh.- og viðskn. hefur ekki getað afgreitt bandorminn, þ.e. ráðstafanir í ríkisfjármálum, vegna þess að ekki liggur fyrir hvernig stjórnarmeirihlutinn ætlar að standa þar að málum. Ég man að minnsta kosti ekki eftir því þau ár sem ég hef verið hér að nefndinni berist bréf frá
fjmrh. þar sem afgreiðslu einnar fagnefndar, þ.e. heilbr.- og trn., er mótmælt þar sem hún leggur samhljóða til í umsögn sinni um breytingar á frv. Daginn eftir kemur bréf undirritað af fjmrh. til nefndarinnar þar sem því er lýst yfir að þetta eigi ekki við nokkur rök að styðjast. Meðan mál eru svona er ómögulegt að afgreiða þau út úr nefndinni. Við verðum að gera á kröfu til stjórnarmeirihlutans að hann komi sér saman um og viti yfir höfuð hvað hann ætlar að afgreiða fyrir jól.