Samningur um breytingar á tilteknum samningum EFTA-ríkjanna

63. fundur
Mánudaginn 19. desember 1994, kl. 17:41:22 (2903)


[17:41]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 409 um fullgildingu samnings um breytingu á tilteknum samningum EFTA-ríkjanna. Tillagan hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um breytingu á tilteknum samningum EFTA-ríkjanna sem áritaður var í Genf 13. desember 1994.``
    EFTA-ríkin gerðu samhliða EES-samningnum með sér samning um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls, annan um fastanefnd EFTA-ríkjanna og þann þriðja um nefnd þingmanna frá þjóðþingum EFTA-ríkjanna. Allir þessir samningar tóku gildi eins og EES-samningurinn 1. janúar 1994. Vegna væntanlegrar aðildar Austurríkis, Finnlands og Svíþjóðar að Evrópusambandinu nú um áramótin hafa Ísland og Noregur gert samning um breytingu á fyrrnefndum EFTA-samningum. Samningurinn var áritaður 13. þessa mánaðar. Helstu breytingarnar sem þessi samningur felur í sér varðar fjölda eftirlitsfulltrúa í eftirlitsstofnun EFTA, fjölda dómara í EFTA-dómstólnum og þann fjölda fulltrúa sem Ísland og Noregur hafa rétt á að tilnefna í þingmannanefnd EES. Aðrar breytingar eru tæknilegs eðlis, t.d. skilgreining á því hvað hugtakið EFTA-ríki þýði í þessum samningum þegar aðildarríkjum þess hefur fækkað um þrjú.
    Samkvæmt samningnum um eftirlitsstofnun og dómstólinn skal eftirlitsstofnunin vera skipuð sjö eftirlitsfulltrúum og dómstóllinn skipaður sjö dómurum. Þær breytingar eru gerðar að eftirlitsfulltrúar verða þrír og dómarar sömuleiðis þrír. Í 11. gr. eru bráðabirgðaákvæði þess efnis að þangað til Liechtenstein gerist aðili að samningnum skuli þriðji eftirlitsfulltrúinn skipaður tímabundið. Hvað dómstólinn varðar verða skipaðir tveir dómarar og þeir skulu velja þriðja dómarann fyrir hvert einstakt mál eins og segir nánar í 12. gr. samningins. Þegar Liechtenstein gerist aðili verður þriðji dómarinn skipaður með venjubundnum hætti.
    Samkvæmt 95. gr. EES-samningsins skal vera starfandi þingmannanefnd EES. Samkvæmt bókun 36 við EES-samninginn er nefndin skipuð 66 þingmönnum, 33 frá Evrópuþinginu og 33 frá þjóðþingum EFTA-ríkjanna. Þessi ákvæði verða óbreytt. Samningurinn gerir ráð fyrir að Alþingi eigi rétt á að tilnefna ellefu þingmenn, tíu ef Liechtenstein gerist aðili, norska Stórþingið 22 en 20 gerist Liechtenstein aðili. Liechtenstein fær hins vegar þrjá fulltrúa verði af aðild þess. Þess er vænst að samningur þessi öðlist gildi á sama degi og aðildarsáttmáli Finnlands, Austurríkis og Svíþjóðar tekur gildi.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til síðari umr. og hv. utanrmn.