[21:30]
Jóhanna Sigurðardóttir :
Virðulegi forseti. Ég tók eftir að hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði í ræðustól að ekki ætti að refsa manni nema hann hafi gert eitthvað af sér sem er refsivert og þetta ákvæði sem hér er verið að flytja kveður á um að viðkomandi hafi gert það af sér sem er refsivert. Við getum tekið sem dæmi að á sex ára tímabili frá 1985--1991 voru 16 mál send til opinberrar rannsóknar en á þessu sama tímabili voru 134 mál send til ríkisskattanefndar til sektarmeðferðar. Hér þarf ekki að vera um nein minni háttar mál að ræða. Hér getur líka verið um meiri háttar mál að ræða. Það hefur verið tilhneiging hjá skattrannsóknarstjóra að senda þessi mál til yfirskattanefndar eða ríkisskattanefndar sem var áður vegna þess að þar fá þau fyrr meðferð og úrlausn en ef þetta er sent til opinberrar rannsóknar og dómstóla. En það getur verið um allt eins alvarleg brot að ræða sem eru til meðferðar hjá yfirskattanefnd og sæta þar sektarmeðferð eins og það sem fer til dómstólanna. Hér er tvímælalaust um að ræða refsiverðan verknað vegna skattalagabrota sem er í tengslum við brot í atvinnurekstri eins og hér stendur. Mér finnst því allt mæla með því að það þurfi að taka þessa brtt. einnig inn.