Skattskylda innlánsstofnana

65. fundur
Þriðjudaginn 20. desember 1994, kl. 16:57:06 (2944)

[16:57]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir afar einföldu lagafrv. sem efh.- og viðskn. flytur. Það er aðeins tvær greinar. 1. gr. er sú að í stað ártalsins 1993 komi 1994. Þetta er breyting á lögum nr. 56/1994, um breyting á lögum nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum. Þannig háttaði til að þessi ártöl skoluðust til í meðferð nefndarinnar í fyrra þegar verið var að afgreiða þetta mál og því er nauðsynlegt að þau séu leiðrétt og þetta er einfaldlega tæknilegt atriði sem á ekki að vera mikið mál að þingið afgreiði.