Útflutningur hrossa

65. fundur
Þriðjudaginn 20. desember 1994, kl. 17:02:49 (2946)

[17:02]
     Stefán Guðmundsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég kem hér af fullri vinsemd og vil benda á það þegar ég les þetta skjal, að hér stendur: Frv. til laga um útflutning hrossa. Vegna þess sem hér hefur verið að gerast í dag læðist að mér sá grunur, virðulegi forseti, að hér hafi prentvillupúkinn verið á ferð rétt einu sinni og hér hefði fremur átt að standa: Frv. til laga um hrossakaup. Ég beini þeirri fyrirspurn til hv. frsm. nefndarálitsins hvort hann gæti kannski skýrt það fyrir okkur hvað hér er að gerast.