Afgreiðsla stjórnarfrumvarpa

65. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 02:15:04 (2990)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Það hefur orðið samkomulag milli formanna þingflokkanna og forseta um að umræðu um 6. dagskrármálið verði frestað og að fundur hefjist í fyrramálið klukkan 10.30. Á dagskrá þess fundar verða fjáraukalög, fjárlög og lánsfjárlög. Það er gert ráð fyrir því að ljúka fyrrtöldum málum, þ.e. fjárauka- og fjárlögum, þar með atkvæðagreiðslum, á morgun.