Fjáraukalög 1994

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 12:20:22 (3006)


[12:20]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þar sem hv. formaður fjárln. er ekki viðstaddur hér og aðrir hafa misst málið þá tel ég mér skylt að svara hv. 3. þm. Austurl., gefa honum svar við þeirri spurningu hvað standi að baki þessarar yfirlýsingar. Það stendur einfaldlega það að í frv. til fjárlaga fyrir árið 1995 er ekki ein króna til framkvæmdar jarðræktarlaga. Þannig að ríkisstjórnin hefur svarað hv. þm. Það stendur ekki til að leggja einn einasta eyri til þessara mála.