[16:42]
Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ragnari fyrir að taka þessa umræðu upp. Það liggur mikið við. Segja má að líf liggi við að þessi deila verði leyst sem allra fyrst. Ég hygg að flestir landsmenn átti sig á að verkfall heilbrigðisstétta er dauðans alvara. Það hefur margkomið fram um þetta málefni að hún bitnar alltaf harðast á þriðja aðila sem ekkert hefur unnið til saka.
Við búum við það, Íslendingar, að það eru einar 30 heilbrigðisstéttir í þessu litla landi og ég er fylgjandi því kerfi að reynt verði að ná samkomulagi um í hvaða tröppu hver grein situr. Ég geri mér grein fyrir því að Sjálfstfl. ber fullkomna ábyrgð á því að Árni Sigfússon, fyrrv. borgarstjóri, ætlaði að vinna kosningar á því að semja sérstaklega við hjúkrunarfræðinga og hækkaði laun þeirra einhliða. Það var viðurkennt um allt land og síðan af samninganefnd ríkisins og því blasir það við að ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að setjast af fullri alvöru yfir þetta mál.
Ég fagna því að hæstv. forsrh. skuli vera við þessa umræðu. Það gerðist 1985, þá voru kennarar í verkfalli, Bandalag háskólamenntaðra kennara, að hæstv. fyrrv. forsrh. Steingrímur Hermannsson skarst í þá deilu og leysti hana með yfirlýsingu. Nú er komið að því, hæstv. forsrh., að verkstjóri ríkisstjórnarinnar getur ekki lengur setið hjá. Hann verður að ganga í þessa deilu, hann verður að leysa þessa deilu. Sjálfstfl. ber fullkomna ábyrgð vegna þess, eins og hér hefur verið rakið, hvernig komið er. Það er brýnt þjóðarinnar vegna, hæstv. forseti, að ljúka þessu máli með lausn fyrir jól.