[18:35]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Örlítil athugasemd út af ræðu síðasta hv. þm. Það mátti merkja á ræðu hv. þm. að svo væri að meiri hluti nefndarinnar sýndi helst ekki erindi sem nefndinni bærust heldur afgreiddi allt saman fyrir luktum dyrum og það væri ekki fyrr en skjöl væru komin inn í þingið að minni hlutinn fengi að sjá. Þetta er ekki rétt mynd. Nefnt var til sögunnar eitt dæmi varðandi Sjúkrahús Suðurlands. Þannig var að við 2. umr. fjáraukalaga á dögunum, þann dag barst bréf til formanns fjárln. og varð umræðuefni hér við 2. umr. fjáraukalaga þar sem lýst var vanda Sjúkrahúss Suðurlands. Það bréf fékk eðlilega afgreiðslu í nefndinni að mínu mati. Mig kann þó að bresta minni til þess, það kann að hafa farið, ég vil ekki fullyrða um það, það kann að hafa gerst að erindið hafi ekki farið rétta boðleið fyrir alla nefndina. Engu að síður er ég sannfærður um það að allir nefndarmenn vilja stuðla að því að úr vanda Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi verði leyst og samþykktin gengur auðvitað út á það að beina þeim tilmælum til heilbrrn. að farið verði að með sama hætti og gert var með sjúkrahúsin í Neskaupstað og á Akranesi á sl. ári.