Fjáraukalög 1994

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 00:58:34 (3130)

[00:58]
     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Þetta mál snýst um að hitaveitur fái niðurfellingu á gömlum söluskattsskuldum. Væri það í samræmi við ákvörðun Alþingis fyrir tveimur árum þegar felldar voru niður sams konar skuldir af hitaveitum í Hvalfirði og Varmahlíð. Ég segi já.