Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:15:38 (3132)


[01:15]
     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Þessar hækkanir á sértekjum munu byggðar á brtt. sem flutt er á þskj. 451 við frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum þar sem gert er ráð fyrir nýju gjaldi, 2,50 kr. á hvert kíló kjöts, til heilbrigðiseftirlits dýralækna. Þessi brtt. mun ekki hafa komið neitt til skoðunar í efh.- og viðskn. en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið virðist vera um hækkun á útgjöldum að ræða fyrir afurðastöðvar og því segi ég nei.