Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:11:54 (3157)


[02:11]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég get vel tekið undir að það er óvenjulegt að fara að með þessum hætti en ástæðan er sú að með þessum fjármunum er m.a. verið að efna til sameiginlegs átaks í ferðamálum bæði með Færeyingum og Grænlendingum og jafnframt verið að efna til þess að kynna Ísland með sérstökum hætti erlendis. Rannsóknir hafa leitt í ljós að það hefur gefið mjög góða raun.