Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:17:10 (3158)

[02:17]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Það fjárlagafrv. sem hér er komið til lokaafgreiðslu sýnir efnahagsstefnu núv. ríkisstjórnar. Það byggir á hæpnum forsendum og það kemur ekki við þann veruleika sem er í þjóðfélaginu í dag, kemur ekki til móts við þá sem eiga í erfiðleikum fjárhagslega, einstaklinga í landinu, og það er núv.

ríkisstjórn og stjórnarliðar sem bera ábyrgð á þessu máli í heild. Ég vil ekki bera ábyrgð á þessu frv. og greiði því ekki atkvæði.