Jólakveðjur

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:23:04 (3161)


[02:23]
     Ragnar Arnalds :
    Fyrir hönd okkar alþingismanna vil ég þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég þakka forseta einnig sanngjarna fundarstjórn og ágæta forustu um þingstörfin. Ég óska hæstv. forseta og skrifstofustjóra Alþingis og reyndar starfsliði öllu gleðilegra jóla og ég vil leyfa mér að vænta þess að við megum hittast hér heil til starfa að loknu þessu stutta jólahléi.
    Ég bið hv. þm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]