[23:16]
Finnur Ingólfsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Það hefur komið fram að menn hafi gert samkomulag um að ljúka þessu frv. til lánsfjárlaga á fundinum í kvöld. Það er alveg rétt, það gerðu menn fyrir jól og handsöluðu því við fjmrh. þegar menn luku fundi. Á þeim fundi þar sem gengið var frá því samkomulagi gekk ég eftir því við hæstv. fjmrh. hvort ekki væri alveg klárt að ekki kæmu fram neinar breytingartillögur við frv. Fjmrh. svaraði því þá svo að hann vissi ekki til þess að neinar breytingartillögur kæmu fram og það væri alveg klárt að engar yrðu breytingartillögur fluttar. Því væri hægt að ljúka 2. og 3. umr. um málið á þessum degi. Hins vegar er rétt hjá hv. þm. Geir H. Haarde að umræðan um atkvæðagreiðslu á morgun var löngu hafin áður en þessi uppákoma varð og ég sé ekki að það breyti miklu ef umræðunni lýkur í kvöld hvort atkvæðagreiðslan fer fram á morgun eða ekki. En það sem breytir talsverðu í málinu er það að nú er það upplýst sem var ekki upplýst á fundi með forseta þingsins áðan að þessi tillaga er flutt að ósk hæstv. fjmrh. Það er auðvitað dálítil breyting vegna þess að ég spurðist fyrir um þetta áðan og þá var mér sagt að brtt. væri flutt af nefndinni og væri þar af leiðandi fjmrh. alveg óviðkomandi. Ef hún hefði einhver truflandi áhrif á það að umræðunni gæti lokið í kvöld væri sjálfsagt að taka hana út. Nú spyr ég hæstv. fjmrh. þannig að menn geti haldið þingstörfum áfram og staðið við það samkomulag sem var gert fyrir jól hvort hæstv. fjmrh. ætlar ekki að beita sér fyrir því að brtt. verði afturkölluð sem meiri hluti hv. efh.- og viðskn. flutti hér.