Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 00:07:09 (3240)


[00:07]
     Sigbjörn Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Mér þykir rétt að taka svolítinn þátt í þessum spurningaleik og þá til þess að svara. Ítrekað hefur verið spurt hvort Alþfl. standi að þessari tillögu. Þannig er að hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Alþfl., er einn af flutningsmönnum tillögunnar og ef litið er til baka yfir þetta kjörtímabil þá hygg ég að það hafi ekki brugðist að þingflokkur Alþfl. hafi staðið að baki sínum mönnum í tillöguflutningi og þannig mun verða nú.
    Hins vegar, virðulegi forseti, var hér söguleg stund áðan og nokkur tímamót, alla vega fyrir mig, á þessu kjörtímabili. Það var í fyrsta sinn sem ég hef heyrt úr þessum ræðustóli að vitnað sé til einkasamtala hér í húsinu og það þótti mér mjög miður.