[04:22]
Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þm. sagði hér áðan að ríkisstjórnin sem starfaði á sínum tíma undir forsæti Þorsteins Pálssonar gerði ýmislegt til að reyna að styðja við þessa grein. En vandi hennar er einfaldlega þessi: Sá fiskur sem alinn er upp með ærnum tilkostnaði selst ekki á mikið hærra verði nú á erlendum mörkuðum heldur en þorskur sem er veiddur villtur við Ísland. Og það segir sig sjálft að á meðan staða greinarinnar er slík og verðið fyrir afurðirnar er svona lágt þá geta menn ekki gert ráð fyrir því að hægt sé að stunda fiskeldi með góðum árangri á Íslandi. Það er ekki hægt. Jafnvel þó svo að viðkomandi atvinnustarfsemi fengi heimildir til að afskrifa allan sinn fjárfestingarkostnað þá er rekstrarkostnaðurinn meiri en svo að það lága verð sem nú er á ræktuðum laxi á heimsmarkaði nægi til þess að standa undir hlaupandi rekstrarkostnaði íslensku fiskeldisstöðvanna. Það er vandamál greinarinnar en ekki það að brestur hafi verið á opinberum stuðningi.