Ábyrgð á láni til Silfurlax hf.

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:12:18 (3317)


[13:12]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Vitaskuld er það góðra gjalda vert að vilja hjálpa þessu fyrirtæki eða eigendum þess jafnvel þó að komið hafi fram að þeir séu ekki örsnauðir menn. Hitt finnst mér bera vott um æðimikla hugkvæmni að láta sér detta í hug að taka veð í hafbeitarlaxi sem kunni að slæðast til baka 1996. Út af fyrir sig finnst mér það mikil hugkvæmni að láta sér detta þetta í hug, sérstaklega þegar það kemur nú í ljós að þessi hafbeitarlax er ekki veðhæfur og hefur meira að segja gengið um það hæstaréttardómur. Þetta allt saman fer nú að minna mig á afgreiðslu sem skeði hér fyrir mörgum árum varðandi gullskipið og leitina að því.