Lánsfjárlög 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:57:01 (3331)


[13:57]
     Sturla Böðvarsson :
    Hæstv. forseti. Ríkisábyrgð til eins félags í fiskeldi hlýtur að valda deilum. Hér er hins vegar um að ræða mjög stórt tilraunaverkefni á sviði hafbeitar sem er mikilvægt að ljúka. Eigendur munu leggja fram verulegar fjárhæðir til að halda verkefninu áfram og ábyrgð verður ekki veitt nema að uppfylltum skilyrðum sem landbrh. og fjmrh. munu setja. Ég segi því já.