Brunatryggingar

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 14:16:07 (3340)


[14:16]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Þar eð menn eiga samkvæmt þessari grein misjafnan bótarétt eftir því hvar þeir eiga heima á landinu þótt um hliðstæð tjón sé að ræða þá sé ég ekki að greinin samræmist mannréttindakafla stjórnarskrár þeirrar sem hér er í undirbúningi þar sem lögð er sérstök áhersla á jafnræðisregluna. Ég tel að þessi hugsun sem kemur fram í greininni brjót gegn þeim anda sem er í frv. og þess vegna segi ég nei.