Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 15:11:45 (3368)


[15:11]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Forseti var spurður að því áðan hvort breytingar í 8. og 9. gr. frv. afmörkuðust við árið 1995 eða væru varanlegar breytingar. Forseti kvaðst ekki geta svarað því þannig að umræðan hófst undir þeim formerkjum að það væri óljóst. Nú hefur hv. nefnd haft málið til athugunar og ég spyr því frsm. meiri hluta nefndarinnar: Eru þessi ákvæði í 8. og 9. gr. frv. afmörkuð við árið 1995, eins og heiti frv. gefur til kynna, eða er hér um að ræða varanlega breytingu á lögunum og þar með heiti frv. rangt?