Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 16:22:12 (3377)


[16:22]
     Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir að taka undir þessa athugasemd mína. Ég vænti þess að það vísi til þess að hæstv. ráðherra sé reiðubúinn til þess að skoða framsetningu mála af þessum toga. Það er heldur leiðinlegt hvernig þetta er lagt fyrir þingið, svo að ekki sé sterkara að orði kveðið, þessir bandormar, og sannarlega þörf á því að reyna að skipta þeim upp í liði eins og skepnan sú sem frv. er kennt við er byggð upp úr og losa þá sundur og koma málunum efnislega fram eins og eðlilegt verður að teljast og betur fer á að öllu leyti.