[12:49]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni fyrir afar yfirgripsmikla ræðu þó að ég sé ekki sammála honum í öllum atriðum. Það er eitt sem mig langar til þess að spyrja hv. þm. um varðandi umhverfismálin. Vissulega deili ég þeim áhyggjum með þingmanninum en ég vil spyrja hv. þm. að því hvaða lausn hann sjái á umhverfisvanda heimilisins jarðar, eins og hann nefndi í sinni ræðu, þannig að hún felist ekki í alþjóðasamningum og þar af leiðandi yfirþjóðlegu valdi til þess að framfylgja þeim.
Í öðru lagi langar mig til þess að spyrja hv. þm. varðandi afstöðu hans til málsins sem mér fannst þó vera nokkuð skýr. Ég túlkaði ræðu hans að hann væri á móti Úrúgvæ-lotunni og GATT, móti nýju tollastofnuninni og spyr því hv. þm.: Er þingmaðurinn alfarið á móti þátttöku okkar í GATT fram að þessum tíma? Er það skoðun hans að það hafi verið okkur til tjóns og við eigum nú á þessum tímapunkti að segja skilið við þessa stofnun? Ég held að það sé nauðsynlegt að það komi fram hér hvort þetta er raunverulega afstaða þingmannsins.