Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 17:20:43 (3445)


[17:20]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Mér er ljúft að svara þessu. Eins og fjárlög liggja nú fyrir þá er heimild til þess í 6. gr. að verja fé til verðjöfnunargjalda til stuðnings útflutningi á matvælum þar sem um unnar matvörur er að tefla, hvort við nú kynnum að skilgreina þær endilega sem landbúnaðarvörur eða fiskmeti eftir því hvaða hlutfall er þar á milli, en við skulum segja að þegar um unnar matvörur er að tefla en í sumu fiskmeti er t.d. bræddur ostur og þar fram eftir götunum. Það er heimild til að greiða slík verðjöfnunargjöld við útflutning og eins og hæstv. forsrh. lýsti yfir í dag þá er unnið að því að almenn reglugerð um þau efni geti legið fyrir í öndverðum janúarmánuði.