[20:37]
Hjörleifur Guttormsson :
Virðulegi forseti. Samningurinn sem hér er leitað staðfestingar á hefur fengið afar takmarkaða skoðun á Alþingi og sáralitla kynningu í þjóðfélaginu. Þörf var á mun meira svigrúmi til að fjalla um hann. Engin haldbær rök eru fyrir því að afstaða Alþingis þurfi að liggja fyrir nú fyrir áramót. Eðlilegt væri að fyrir þinginu lægju jafnhliða samningnum helstu frumvörp að lagabreytingum sem fylgja verða í kjölfarið. Ekkert af þeim frumvörpum liggur hér fyrir. GATT-samningurinn sniðgengur með öllu umhverfismál og festir í sessi efnahags- og viðskiptakerfi sem auka mun enn á sóun náttúruauðlinda og bæta við mengun á heimsvísu. Fyrir Íslendinga felur GATT-samningurinn í sér vissar hagsbætur til skamms tíma litið en honum fylgja einnig afar neikvæðir þættir sérstaklega að því er varðar landbúnað vegna ört vaxandi samkeppni við innfluttar afurðir. Afleiðingarnar munu m.a. koma fram í auknu atvinnuleysi. Ég veit að margir hafa svipaðar áhyggjur og ég vegna þessa máls. Ég vil enga ábyrgð taka á þessum samningi og greiði því ekki atkvæði.