Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 22:20:46 (3468)


[22:20]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur fyrir ábendingarnar en ég vil þó leiðrétta hana um tillögur nefndarinnar. Hér er um að ræða tillögur meiri hluta nefndarinnar, þ.e. meirihlutafulltrúanna í nefndinni og þær breytingartillögur eru í raun alfarið á ábyrgð þeirra, m.a. vegna þess að því var hafnað að taka inn nema hluta af þeim tillögum sem komu samhljóða frá heilbr.- og trn. En ég mun koma ábendingunum til skila og við skulum vona að hægt verði að gera hið besta úr þessu.