Mat á sláturafurðum

73. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 01:16:18 (3488)


[01:16]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Mér er ljúft að gefa þá yfirlýsingu að við setningu reglugerðar um gjald þetta verður sérstaklega reynt að gæta að því að eftirlitsgjaldið miðist við raunkostnað og verði ekki of hátt. Ég vil að það komi alveg skýrt fram. Lagatextinn er afdráttarlaus um þetta atriði, eftirlitsgjaldið miðast við raunkostnað og ég lít svo á að ekki sé heimild til að innheimta meira en því nemur.