Frestun á fundum Alþingis

75. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 01:53:46 (3504)


[01:53]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 30. desember 1994, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 25. janúar 1995.``
    Tillagan skýrir sig sjálf.