Nýársóskir

75. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 02:10:22 (3510)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Með því að þetta er síðasti fundur Alþingis á þessu ári vil ég flytja öllum hv. þingmönnum, skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis mínar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakka ánægjulegt samstarf á því ári sem nú er að ljúka. Þinghaldið hefur verið óvenjustrangt að þessu sinni og hléið um jólin styttra en gert var ráð fyrir. Ég óska ykkur öllum góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.